Öruggur rekstur á Sögu sjúkraskrá

Helix tekur ábyrgð á heildarrekstri Sögu og tengdum lausnum, með stöðugri vöktun, sérhæfðri rekstrar- og öryggisþekkingu og öflugum innviðum. Öruggur og ábyrgur rekstur dregur úr líkum á atvikum og takmarkar jafnframt afleiðingar þeirra þegar eitthvað kemur upp. Þannig minnkar rekstraráhættan og kostnaðurinn sem getur fylgt óvæntum atvikum.

Læknir að skrá sig inn í sögukerfið

Góður rekstur sést þegar á reynir

alt missing

Drögum úr líkum á atvikum

Stöðug vöktun, reglulegt viðhald, uppfærslur og öryggisráðstafanir hjálpa okkur að greina og bregðast við atvikum áður en þau hafa áhrif á reksturinn.

alt missing

Bregðumst hratt við

Stöðug vöktun, skýrir verkferlar, bakvaktir og æfð viðbrögð gera okkur kleift að greina frávik hratt og takmarka áhrif þeirra

alt missing

Endurheimtum reksturinn

Afrit, öflugir innviðir og æfðir endurheimtarferlar tryggja að hægt sé að endurheimta gögn og koma þjónustunni hratt aftur í rekstur.

Dýrasti kostnaðurinn kemur þegar reksturinn stöðvast

Ábyrgur rekstur snýst ekki bara um að halda Sögu gangandi. Hann snýst um að draga úr líkum á atvikum og takmarka áhrif þeirra þegar eitthvað kemur upp. Atvik sem truflar reksturinn getur haft gríðarleg áhrif bæði starfsfólk og sjúklinga. Með því að fjárfesta í öflugum innviðum, vöktun og sérfræðiþekkingu er hægt að draga úr þessum áhrifum og jafnvel fyrirbyggja með öllu.

Markmiðið er að lágmarka heildarkostnaðurinn en það fæst með lágmörkun á áhættu og hraðri úrvinnslu, þ.e.a.s ábyrgum rekstri.

Ávinningur af heildstæðum rekstri hjá Helix

Icon

Viðbrögð á einni hendi

Engin dreifð ábyrgð milli hýsingaraðila, rekstraraðila og endanotenda. Ef eitthvað kemur upp á þarf einungis að hafa samband við okkur.

Icon

Heildstæð 24/7 vöktun

Við fylgjumst með rekstrinum allan sólarhringinn og erum með sérfræðinga á bakvakt þegar á þarf að halda. Þú getur því treyst á að brugðist sé við ef eitthvað kemur upp.

Icon

Uppfærslur án truflana

Við uppfærum Sögu án þess að trufla daglegan rekstur. Notendur fá nýjustu útgáfu án aukakostnaðar og þurfa ekki að huga að uppfærslunum sjálfir.

Tæknilegt yfirlit

Öflugir innviðir fyrir Sögu

  • 24/7 SOC innbrotsvakt frá Syndis
  • Bakvakt og rekstrareftirlit
  • Vöktun á villum og afköstum
  • Uppfærslur á Sögu án niðritíma
  • Æft viðbragð vegna atvika
  • ISO 27001:2022 vottun
  • Gögn vistuð á Íslandi undir íslenskri lögsögu
  • Sérfræðiþekking á rekstri Sögu
  • Afrit og endurheimtaferlar

Viltu vita meira um öruggan rekstur á Sögu?